Deildarstjóri lagna og loftræsinga

Type
Full-Time, Permanent
Country
Iceland
Location
Reykjavik
Application deadline
02 November 2026
Req ID
61891

Head of Discipline HVAC / Deildarstjóri lagna og loftræsinga  

Starfstöð COWI í Kópavogi, Urðarhvarfi 6 

Ertu reynslumikill sérfræðingur/leiðtogi með brennandi áhuga á lögnum og loftræsingum? Langar þig að nýta faglega þekkingu þína til að leiða teymi sérfræðinga, leiða þróun fagsviðsins hjá okkur og taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu sterkrar deildar til framtíðar? Þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið nánar. 

 

Hlutverk  

COWI á Íslandi leitar að deildarstjóra lagna og loftræsinga (e. Head of Discipline HVAC) til að leiða öflugt teymi sérfræðinga sem vinnur að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á sviði bygginga, iðnaðar og orkumannvirkja. 

Sem deildarstjóri leiðir þú þróun deildarinnar, styður við liðsheild, vöxt og þróun starfsfólks og mótar framtíð þjónustu okkar á sviði lagna og loftræsinga. Þetta er hlutverk fyrir einstakling sem hefur áhuga á að sameina sterkan faglegan grunn, leiðtogahlutverk og þátttöku í spennandi verkefnum fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina. 

Deildin kemur að verkefnum sem fela meðal annars í sér varma- og straumfræðigreiningar, kerfis- og þrívíddarhönnun auk gerðar upplýsingarlíkana (BIM) fyrir lagna- og loftræsikerfi. Það sem gerir starf hjá COWI sérstaklega áhugavert er að við höfum aðgang að víðtæku alþjóðlegu neti sérfræðinga. Þannig gefst tækifæri til að vinna náið með sérfræðingum víða um heim og nýta þekkingu sem nær langt út fyrir íslenskan markað. Verkefnastaðan okkar er mjög góð og við stefnum að því að efla frekar HVAC deildina okkar á Íslandi.  

 

Helstu verkefni eru: 

  • Dagleg stýring deildarinnar og verkefni tengd mannauði, starfsþróun, mannaflaáætlunum og álagsdreifingu. 

  • Að leiða, styðja og þróa starfsfólk deildarinnar þannig að það fái notið styrkleika sinna og náð árangri í starfi.  

  • Að byggja upp og viðhalda sterkum viðskiptatengslum í samstarfi við aðra stjórnendur COWI. 

  • Að byggja upp og efla samstarf í verkefnum við aðrar deildir COWI, bæði innanlands og á öðrum mörkuðum. 

  • Verkefnastjórn, hönnunarstjórn, verkefnavinna ásamt þátttöku í gerð samninga, kostnaðaráætlana og verkáætlana. 

  • Eftirfylgni verkefna og stuðningur við árangursríka framkvæmd þeirra. 

   

Menntun og hæfni  

COWI er þekkingarfyrirtæki og byggjum við reksturinn á þekkingu og hæfni fólksins okkar. Til að ná árangri í þessari stöðu leitum við að aðila sem kann að greina tækifærin og grípa þau, hefur gaman af því að vinna í skilvirku teymi þvert á deildir og landamæri og er opinn fyrir nýjum áskorunum.  

Að auki erum við að leita að: 

  • Háskólamenntun eða aðra viðeigandi menntun á sviði verk- eða tæknifræði. 

  • Yfirgripsmikilli reynslu á sviði lagna og loftræsinga, að lágmarki 10 ár. 

  • Reynslu af stjórnun, verkefnastjórnun og/eða leiðtogahlutverki. 

  • Góðri íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti. 

  • Frumkvæði, jákvæðu viðhorfi og sterkri samskiptahæfni. 

  • Sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum. 

 

Umsóknarfresturinn er til og með 2. nóvember. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Guðjón Jónsson (sigjo@cowi.com), Head of Engineering COWI á Íslandi, og Janne Hellerup Nilsen (jane@cowi.com), sérfræðingur í ráðningum.  

Við óskum eftir að umsókn þín sé á ensku þar sem við vinnum í alþjóðlegri samstæðu með samvinnu á milli starfsstöðva okkar, þar sem viðskiptamálið okkar er enska. 

 

Við bjóðum líka uppá  

  • Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika í bland við vinnu á starfsstöð 

  • Öflugt mötuneyti með morgunmat, hádegismat og síðdegishressingu   

  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrkir 

  • Starfsmannafélag með fjölbreyttum deildum og viðburðum  

  • Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi  

  • Starfsþróunarmöguleikar innan COWI, starfsþróunaráætlanir og rafræn þjálfun hjá COWI Academy  

  • Árlegt heilsufarsmat 

 

Áður en þú sækir um  

Til að stuðla að jafnræði í ráðningarferlinu óskum við ekki sérstaklega eftir mynd umsækjanda á ferilskránni. Við viljum leggja áherslu á hæfni, reynslu og persónulega eiginleika sem koma fram í umsókninni. 

Hvað kynningarbréfið varðar, þá gerum við ekki kröfu um kynningarbréf en ef þú telur það skerpa á skilningi okkar á þinni reynslu og hæfni þá hvetjum við þig eindregið til að láta það fylgja með. 

 

Vinnustaður og svo miklu meira  

Við trúum því að velsæld stuðli að betri frammistöðu og að betri frammistaða ýti undir vellíðan. Okkar helsta hvatning er að búa til vinnustað framtíðarinnar; umhverfi þar sem fólk fær að vaxa og dafna. Starfsþróun er mikilvægur þáttur og markmið okkar er að starfsfólk fái að þróast og þroska með sér nýja hæfni sem býr til verðmæta þekkingu.  

Hjá okkur starfar alþjóðlegt samfélag sérfræðinga þar sem gagnkvæm miðlun á þekkingu fer fram og tækifæri er til þess að vinna þvert á landamæri. Starfsfólk okkar vinnur daglega að því að betrumbæta samfélagið okkar með því að breyta áskorunum í sjálfbærar lausnir. Þótt að verkefnin okkar séu stór og jafnvel alvarleg þá tökum við okkur sjálf mátulega hátíðlega. 

Skrifstofur COWI eru staðsettar í 35 löndum víða um heim, m.a. á Norðurlöndunum, í Bretlandi, Norður-Ameríku og Asíu. Hjá okkur starfa um 7.500 aðilar, að meðtöldum 250 einstaklingum á Íslandi, sem búa yfir sérþekkingu í verkfræði, arkitektúr, orku- og umhverfismálum.   

 

Ertu með fleiri spurningar?  

Ef það brenna á þér spurningar um hlutverkið eða hvað það er sem við höfum upp á að bjóða, vinsamlegast hafðu samband við Sigurð Guðjón Jónsson VP Head of Engineering (sigjo@cowi.co).  

Ef þú vilt kynnast okkur betur líttu endilega við á vefsíðuna okkar, www.cowi.com/iceland-is. Þar getur þú lært meira um verkefnin okkar og markmiðin og hvernig það er að starfa hjá COWI.  

 

Fögnum fjölbreytileikanum og öll velkomin 

Við erum staðráðin í því að skapa góða vinnustaðamenningu og gott vinnuumhverfi þar sem allt starfsfólk upplifir sig sem hluta af COWI og við fáum öll tækifæri til að vaxa og dafna. Við styðjum fjölbreytileika í ákvörðunum og í samsetningu teyma. Við erum með jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012.  

Apply