Sérfræðingur í hönnun samgöngumannvirkja

Type
Full-Time, Permanent
Country
Iceland
Location
Kópavogur, Akranes, Akureyri, Egilsstaðir, Reyðarfjörður, Selfoss
Application deadline
07 December 2026
Req ID
62168

COWI Ísland, óháð starfstöð  
Hefur þú áhuga á fjölbreyttum hönnunarverkefnum á sviði samgangna? Vilt þú verða hluti af alþjóðlegu fyrirtæki og takast á við áhugaverð verkefni? Langar þig að þróast í starfi innan fjölbreytts hóps sérfræðinga hérlendis og erlendis? Þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið betur hér að neðan.    
 
Hlutverk
COWI á Íslandi leitar að sérfræðingi í hönnun samgöngumannvirkja til að bætast við deild samganga og veitna. Á deildinni starfa 18 einstaklingar sem fást við fjölbreytt verkefni sem snúa að hönnun samgöngumannvirkja og veitulagna, framkvæmdareftirliti, mælingar, gerð kostnaðaráætlana og útboðsgagna. 

Lykilþættir starfsins eru:   
·    Hönnun samgöngumannvirkja s.s. vega, gatna og stíga.
·    Hönnun vinnusvæðamerkinga
·    Gerð teikninga og magntaka.
·    Samskipti við verkkaupa og aðra hagsmunaaðila.  
 
Menntun og hæfni  
Til að ná árangri í þessu starfi teljum við að þú ættir að vera sveigjanlegur einstaklingur sem opinn er fyrir nýjum áskorunum. 

Að auki erum við að leitast eftir:
·    Menntun sem nýtist í starfi s.s. B.Sc. próf í verk- eða tæknifræði.
·    Reynsla af hönnun samgöngumannvirkja er kostur. 
·    Reynsla af notkun hönnunarforrita s.s. Civil 3D og/eða OpenRoads er kostur.
·    Jákvætt viðhorf og frumkvæði í starfi.  
·    Góðir samskiptahæfileikar.  
·    Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð. 
·    Íslenskukunnátta í tali og rituðu máli. 
 
Umsóknarfresturinn er til og með 7. desember. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Bjarnason (sbjar@cowi.com) og Breki Bjarnason (brbja@cowi.com).   
 

Við bjóðum líka uppá:
·    Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika samhliða vinnu á starfsstöð.
·    Samgöngu- og líkamsræktarstyrki.
·    Starfsmannafélag með fjölbreyttum viðburðum yfir árið.
·    Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi.
·    Starfsþróunarmöguleika innan COWI, starfsþróunaráætlanir og rafræna þjálfun hjá COWI Academy.
·    Árlegt heilsufarsmat.
 
Áður en þú sækir um
Allt sem þú þarft að hafa með í umsókninni þinni er ferilskráin þín - engin mynd eða umsóknarbréf. Í viðtali getur þú sagt okkur allt sem við þurfum að vita um hvers vegna þú hefur áhuga á að ganga til liðs við COWI. Hvað myndina varðar, þá kjósum við að mynda fyrstu kynni okkar í eigin persónu frekar en út frá mynd.
 
Vinnustaður og svo miklu meira 
Við hjá COWI, í samstarfi við viðskiptavini okkar, stuðlum að sjálfbærum heimi þar sem fólk og samfélög fá að vaxa og dafna. Við gerum það með því að nýta þekkingu okkar, forvitni og hugrekki til að finna lausnir til að skapa betri heim. Við höfum sett okkur það markmið að stuðla að sjálfbærri þróun í öllum okkar verkefnum.
Skrifstofur COWI eru staðsettar í 35 löndum víða um heim, m.a. á Norðurlöndunum, í Bretlandi, Norður-Ameríku og Asíu. Hjá okkur starfa um 7.500 aðilar, að meðtöldum 250 einstaklingum á Íslandi, sem búa yfir sérþekkingu í verkfræði, arkitektúr, orku- og umhverfismálum.  
 
Ertu með fleiri spurningar? 
Ef það brenna á þér spurningar um hlutverkið eða hvað það er sem við höfum upp á að bjóða, vinsamlegast hafðu samband við Breka Bjarnason (brbja@cowi.com).
Ef þú vilt kynnast okkur betur líttu endilega við á vefsíðuna okkar, www.cowi.com/iceland-is. Þar getur þú lært meira um verkefnin okkar og markmiðin og hvernig það er að starfa hjá COWI.
 
Fögnum fjölbreytileikanum og öll velkomin
Við erum staðráðin í því að skapa góða vinnustaðamenningu og gott vinnuumhverfi þar sem allt starfsfólk upplifir sig sem hluta af COWI og við fáum öll tækifæri til að vaxa og dafna. Við styðjum fjölbreytileika í ákvörðunum og í samsetningu teyma. Við erum með jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012.

Apply