COWI veitir víðtæka ráðgjöf á sviði mygluvandamála og bættrar innivistar hjá fyrirtækjum og stofnunum.
Hjá COWI veitum við víðtæka ráðgjöf á sviði mygluvandamála og bættrar innivistar hjá fyrirtækjum og stofnunum. Við leggjum áherslu á að kanna gæði innivistar húsnæðis, greina ástand, gera tillögur að úrbótum og vakta endurbætt ástand.
Þegar grunur er um að innivist sé ábótavant er mikilvægt að greina hvort um er að ræða léleg loftgæði sem geta t.d. verið vegna hitastigs, loftraka, þungs lofts eða jafnvel vegna uppgufunar á efnum í rýminu. Einnig getur slæm innivist stafað af rakaskemmdum og myglu. COWI býður uppá heildar innivistarskoðanir og -innivistarmælingar á húsnæði.
Innivistarskoðun er yfirleitt framkvæmd með þeim hætti að húsnæðið er sjónskoðað og rakamælingar framkvæmdar ásamt skoðun með hitamyndavél. Ef hækkaður raki eða rakaskemmdir finnast getur verið talin ástæða til þess að taka efnissýni. Einnig gæti verið talin ástæða til þess að taka DNA-ryksýni til að kanna umfang rakaskemmda og hvort mengun hafi dreift sér um rýmið. Niðurstöður skoðunar og sýnatöku eru því næst teknar saman í greinagerð þar sem tillögur til endurbóta eru settar fram sé þess þörf.
Ef óskað er eftir skoðun á húsnæði eða frekari upplýsinga er hægt að hafa samband við Bættar byggingar hjá COWI með því að senda tölvupóst á innivist@cowi.com eða hafa samband í síma 4223000.
Innivistarmæling er framkvæmd með síritamælum sem er komið fyrir í húsnæðinu. Mælarnir standa í 1-2 vikur á hverjum stað til að skrásetja loftgæði við hefðbundna notkun. Mælarnir sírita: hitastig, loftraka, CO2, TVOC og PM2,5. Að endingu eru niðurstöður mælinga greindar og teknar saman í greinagerð þar sem tillögur til endurbóta eru settar fram sé þess þörf.
Nánar um COWI á Íslandi.
|
Innivist |
Ástandsskoðanir |
Verkstýring og eftirlit |
|
› Rakaskemmdir og mygla › Loftgæðamælingar › Hljóðvist og lýsing › Loftræsing |
› Ástandsskoðanir á húsnæði › Byggingareðlisfræði › Rakamælingar › Myndun með hitamyndavél |
› Rakavarnareftirlit › Umsjón framkvæmda › Tíma- og kostnaðaráætlanir › Lokanir á vinnusvæðum |
Þarftu ástandsskoðun vegna rakaskemmda og myglu?
Headquarters
COWI A/S
Parallelvej 2
2800 Kongens Lyngby
Denmark
Shortcuts
Sustainability and governance
Terms of use