Velkomin til COWI á Íslandi

Þínar þarfir í fararbroddi

COWI er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki á sviði verkfræði, hönnunar og arkitektúrs. Við búum yfir 60 ára sögu hér á landi og nærri aldarlangri sögu á alþjóðavettvangi. Hjá COWI á Íslandi starfa 265 manns á sex starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Við sýnum árangur í verki og metum velgengni okkar eftir þeim verðmætum sem við sköpum í verkefnum sem við komum að. Markmið okkar er skýrt: Í samstarfi við viðskiptavini okkar stuðlum við að sjálfbærum heimi þar sem fólk og samfélög geta vaxið og dafnað.

 

Nánar

Þeistareykjavirkjun

Við komum að hönnun, umhverfismati og verkefnastjórnun á jarðvarmavirkjuninni að Þeistareykjum. Virkjunin framleiðir raforku sem nægt getur 160.000 íslenskum heimilum.

© Mynd: Landsvirkjun

Úr 265 í 7.500 sérfræðinga um allan heim

Viðskiptavinir okkar og samstarfsaðilar á Íslandi njóta stuðnings frá 7.500 sérfræðingum á Norðurlöndunum, Bretlandi, í Norður-Ameríku og Asíu.

Með góðri samvinnu sameinar starfsfólk COWI krafta sína á sviði verkfræði, hönnunar, orku og umhverfis. Þetta gerir okkur kleift að skapa lausnir í sameiningu sem bæta lífsgæði fólks og komandi kynslóða.

Við sýnum árangur í verki og vitum að markviss eftirfylgni skilar árangri. Þess vegna gefur COWI á Íslandi árlega út sjálfbærniskýrslu. Niðurstöðurnar koma jafnframt fram í árlegri upplýsingagjöf samstæðunnar.

Sjálfbærniskýrsla COWI á Íslandi 2025

Ársskýrsla COWI samstæðunnar 2025

Kynningarbæklingur COWI á Íslandi

Ný Þjóðarhöll

Ný Þjóðarhöll verður tæplega 19.000 fermetra nútímalegur fjölnota íþróttaleikvangur sem uppfyllir alþjóðlega staðla fyrir keppnir og stórviðburði. Verkefnið mun styrkja íþróttastarf, efla lýðheilsu og veita aðgengi að hágæða aðstöðu, auk þess að styrkja stöðu Laugardals enn frekar sem lykiláfangastað fyrir íþróttir og afþreyingu. Verkefnið er unnið af öflugum hópi samstarfsaðila sem samanstendur af ÍAV, COWI, ASK arkitektar, LPO, Ísloft og Landhönnun.

Við komum að fjölbreyttum þáttum mannvirkjagerðar, m.a. jarðtækni, véla- og loftræsikerfum, rafkerfum, lýsingu, hljóðvist, brunavörnum, sjálfbærni, lífsferils- og líftímakostnaðargreiningum (LCA og LCC) auk BREEAM-vottunar.

© Mynd: Ask arkitektar og LPO arkitekter

Vinnustaður og svo miklu meira

Við trúum því að velsæld stuðli að betri frammistöðu og að betri frammistaða ýti undir vellíðan. Helsta markmið okkar er að skapa vinnustað framtíðarinnar; umhverfi þar sem fólk getur vaxið og dafnað.

Sjálfbær uppbygging

Við trúum að starfsþróun sé lykill að sjálfbærri uppbyggingu árangurs okkar. Með því að fjárfesta í þekkingu, hæfni og vexti starfsfólks stuðlum við að nýsköpun, aukinni seiglu og sterkari framtíð fyrir bæði starfsfólk og fyrirtækið. Við leggjum áherslu á að skapa tækifæri til náms, þróunar og nýrra áskorana á öllum stigum starfsferilsins.  

Vinnustaðamenning sem eflir og nærir geðheilsu

Geðheilsusáttmáli COWI á Íslandi tók gildi árið 2024 og endurspeglar hvernig vinnustaður við viljum vera. Með skýrri sýn, markmiðum og aðgerðum styðjum við við geðheilbrigði og jákvæða líðan starfsfólks. Þannig byggjum við upp vinnuumhverfi sem eflir vellíðan, traust og árangur.

Alþjóðlegt samfélag sérfræðinga

Hjá okkur starfar alþjóðlegt samfélag sérfræðinga sem deilir þekkingu og reynslu þvert á landamæri. Starfsfólk okkar fær tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og vinna með fremstu sérfræðingum í sínu sviði.

Á hverjum degi leggjum við okkar að mörkum til að bæta samfélagið með því að umbreyta áskorunum í sjálfbærar lausnir. Þótt að verkefnin okkar séu oft umfangsmikil og krefjandi þá tökum við okkur sjálf ekki of hátíðlega.

COWI er með starfsemi í 35 löndum, m.a. á Norðurlöndunum, í Bretlandi, Norður-Ameríku og Asíu. Hjá okkur starfa um 7.500 sérfræðingar, þar af 265 á Íslandi, sem búa yfir sérþekkingu í verkfræði, arkitektúr, orku- og umhverfismálum. 

Viltu heyra frá starfsfólkinu okkar?

Borgarlínan

Við mótuðum hágæða almenningssamgöngukerfi sem þjónar öllu höfuðborgarsvæðinu í góðu samstarfi við ríkið og sveitarfélög. Borgarlínan dregur úr umferð og stuðlar að heilsusamlegri og umhverfisvænni borg.

© Mynd: Tripoli Architects

Uppsjávarfrystihús Eskju

Við komum að undirbúningi, hönnun og byggingarstjórnun á uppsjávarfrystihúsi Eskju auk rafvæðingar fiskimjölsverksmiðjunnar, sem er ein fullkomnasta verksmiðja sinnar tegundar við Norður-Atlantshaf. Breytingin hefur jákvæð áhrif á umhverfið, lækkar orkukostnað og dregur verulega úr útblæstri.

© Mynd: Gungör Tamzok

Hörður Bjarnason, vega- og umferðarverkfræðingur, Ísland

„Það er margt sem liggur að baki hverri einustu götu, stíg eða brú og þú þarft ekki að gera annað en að líta út um gluggann – þá sérðu eitthvað sem samgönguverkfræðingur hefur unnið að (...) Það sem er líklega mest gefandi í mínu starfi er að vita að við séum að forða slysum og mögulega bjarga mannslífum.“ 

Hörður Bjarnason

Fæðingarorlof

Að verða foreldri er dásamleg upplifun og á þessum tímamótum er fátt mikilvægara en stuðningur við fjölskyldur. Til þess að létta undir með nýbökuðum foreldrum og forráðamönnum bjóðum við hjá COWI upp á sex mánaða fæðingarorlof með uppbótargreiðslum til þess að tryggja að þú haldir þínum tekjum á meðan orlofi stendur. COWI var fyrst verkfræðistofa á Íslandi til að taka upp þessar greiðslur og við erum ákaflega stolt af því.

Fæðingarorlof hjá COWI

COWI á Íslandi

Vertu hluti af COWI

Skoða starfsmöguleika

Hafðu samband við okkur

 

COWI Ísland ehf.

Urðarhvarfi 6
203 Kópavogi

Sími: 422 3000
cowi_is@cowi.com

kt.: 430572-0169

 

 

 

 

 

 

 


 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kópavogur, Rannsóknarstofa
Sími: 422 3000

Akranes
Sími: 422 3000

Akureyri
Sími: 422 3000

Egilsstaðir
Sími: 422 3000

Reyðarfjörður
Sími: 422 3000

Selfoss
Sími: 422 3000

 

Gunnar Sverrir Gunnarsson, framkvæmdastjóri og sviðsstjóri orku
Sími: 422 3088
Farsími: 899 2089
gunng@cowi.com

 

Ólöf Kristjánsdóttir, sviðsstjóri innviða
Sími: 422 3320
Farsími: 842 3320
olof@cowi.com

 

Sandra Rán Ásgrímsdóttir, sviðsstjóri tækniþróunar
Sími: 422 3200
Farsími: 866 0995
sagd@cowi.com

 

Sigurður Guðjón Jónsson, sviðsstjóri verk- og tækniþjónustu
Sími: 422 3116
Farsími: 842 3116
sigjo@cowi.com 

 

Sigurður Sigurjónsson, sviðsstjóri bygginga
Sími: 422 3404
Farsími 842 3404
sigsi@cowi.com

 

Tryggvi Jónsson, sviðsstjóri markaða
Sími: 422 3045
Farsími: 897 0358
trjon@cowi.com

 

 

Anna Þórunn Björnsdóttir, sviðsstjóri fjármála 
Sími: 422 3057
Farsími: 842 3057
annab@cowi.com

 

María Erla Kjartansdóttir, samskipti 
Sími: 422 3491
mkjar@cowi.com 

 

Friðrik Ómarsson, viðskiptaþróun, orka
Sími: 422 3555
Farsími: 842 3555
friom@cowi.com

 

Inga Björg Hjaltadóttir, sviðsstjóri starfsfólks og skipulags
Sími: 422 3000
Farsími: 863 8804
ingah@cowi.com 

 

 



 

Stefna um jafnrétti, fjölbreytileika, 
inngildingu og jöfn laun